Fundu lík drengsins

AFP

Lík bresks drengs sem var saknað eftir að hafa farið út að leika sér með vinum sínum, fannst á byggingarlóð í South Yorkshire. Drengurinn var sjö ára og hét  Conley Thompson.

Hann fór út að leika með vinum sínum síðdegis í gær. Tveimur tímum síðar var hann á heimleið en þangað komst hann aldrei. Hans var leitað í nótt og í morgun fannst svo lík hans á byggingarlóðinni. 

Rannsókn á andláti drengsins er hafin, segir í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert