Donald Booth, sérstakur erindreki Bandaríkjanna í Suður-Súdan, segir að þolinmæði Bandaríkjamanna og heimsbyggðarinnar allrar gagnvart borgarstyrjöldinni í Suður-Súdan sé á þrotum.
Sérstakir sáttasemjarar hafa gefið stríðandi fylkingum í landinu frest fram til 17. ágúst næstkomandi til að ná sáttum og binda enda á borgarastyrjöldina, sem hefur nú varað í nítján mánuði.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fundaði fyrr í vikunni með leiðtogum Kenía og Eþíópíu þar sem þeir ræddu meðal annars málefni Suður-Súdan.
Booth sagði við blaðamenn í Juba í dag að of margir hefðu látið lífið í styrjöldinni, of margir hefðu þurft að flýja heimili sín og of margir glímdu nú við hungursneyð. „Viðræðurnar geta ekki haldið áfram án niðurstöðu,“ sagði hann. „Þetta ástand getur ekki haldið áfram svona.“
Til greina kemur að grípa til refsiaðgerða gegn leiðtogum stríðandi fylkinga í landinu ef þeir ná ekki samkomulagi sín á milli.