Palestínskt ungmenni skotið til bana

Ísraelskir hermenn á Vesturbakkanum.
Ísraelskir hermenn á Vesturbakkanum. AFP

Palestínskt ungmenni lést í kvöld af sárum sínum, eftir að hafa verið skotið af ísraelskum hermönnum á Vesturbakkanum í kvöld.

Ungmennið var 14 ára og hét Laith Khaldi og var búsett í Jalazon flóttamannabúðunum. Hermennirnir skutu Khaldi í brjóskassan í átökum nærri Atara landamærastöðinni. Khaldi lést af sárum sínum nokkrum klukkustundum síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert