Skipulögðu kynsvall með vændiskonum

Vændiskonur voru í hópnum.
Vændiskonur voru í hópnum. AFP

Meðlimir í tyrkneskum hóp sem skipulagði kynsvall og orgíur gætu átt von á allt að 177 ára fangelsi vegna þátttöku sinnar. 

Lögreglan í Adana í suðurhluta Tyrklands handtók 53 manns í maí vegna gruns um mansal og hórmang þar sem vændiskonur voru í hópnum. Af þessum 53 er búið að ákæra 29 manns sem eiga yfir höfði sér allt frá 3 ára til 177 ára fangelsisdóm.

25 ára háskólanemi stjórnaði hópnum ásamt kærustu sinni. Upphaflega notuðu þau samfélagsmiðla til þess að skipuleggja veislur þar sem hjón gátu stundað makaskipti án þess að greiða nokkuð fyrir.

Síðar var starfsemin þróuð og parið tók stórt einbýlishús á leigu þar sem einhleypum karlmönnum var boðið var taka þátt. Þeir gátu þá gengið að vændiskonum á staðnum fyrir 360 dollara, eða um 48 þúsund krónur.

Meðal handtekinna var gift kona sem sagði lögreglu að hún tæki við greiðslum fyrir kynlíf. Þetta gerði hún með samþykki eiginmannsins til þess að styðja veikan föður sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert