„Ég snerti aldrei drenginn“

Nokkrum klukkustundum áður en Shafqat Hussain var tekinn af lífi í nótt hitti bróðir hans, Gul Zaman, hann í síðasta skipti. Allt fram á síðustu stundu hélt Hussain fram sakleysi sínu: „Ég snerti aldrei drenginn - ég vil að heimurinn viti þetta á dauðastund minni.“

Þrátt fyrir hávær mótmæli frá mannréttindasamtökum var Hussain hengdur í nótt af yfirvöldum í Pakistan. Hussain var dæmdur árið 2004 fyrir morð á sjö ára gömlum dreng í borginni Karachi eftir að hafa játað á sig morðið. Hussain var fjórtán eða fimmtán ára á þessum tíma og dró síðar játninguna til baka og segir að hún hafi verið þvinguð fram með pyntingum.

Dauðadómurinn yfir Hussain vakti mikla athygli víða, meðal annars gagnrýndu Sameinuðu þjóðirnar refsinguna vegna þess hve ungur hann var er dómurinn féll og að játningin hafi verið þvinguð fram með pyntingum. 

Gilda önnur lög um fátæka?

Í bænum Muzaffarabad í Kasmír héraði býr fjölskylda Hussains. „Hvers vegna hengdu þeir bróður minn sem var saklaus? Var það vegna þess að við erum fátæk?“ sagði systir hans Sumaira Bibi, í viðtali við AFP fréttastofuna.

Móðir hans, Makhni Begum, grét þegar fréttamenn náðu tali af henni fljótlega eftir aftökuna en hún hefur upplifað það í fjögur skipti frá því í janúar að hætt hafi verið við aftökuna á síðustu stundu. En ekki núna. „Sonur minn var saklaus. Allah mun sanna sakleysi hans fyrir sínum dómstóli.“ „Við getum ekkert gert en þeir (sem önnuðust aftökuna) munu mæta Allah á dómsdegi.“

Mannréttindafrömuðir hjá SÞ segja að réttarhöldin yfir Hussain standist ekki alþjóðlegar reglur og hvöttu SÞ stjórnvöld í Pakistan til þess að taka fangann ekki af lífi án þess að rannsaka ásakanir um pyntingar sem og aldur hins dæmda.

Meðal þeirra sem reyndu að biðla til forseta Pakistans um að þyrma lífi Hussains var héraðsstjórnin í Kasmír. Án árangurs. „Shafqat Hussain var hengdur 10 eða 12 mínútum fyrir bænir í dagrenningu,“ segir fangavörður í samtali við AFP.

Segja að rannsókn hafi leitt í ljós að hann var orðinn 18 en birta hana ekki

Rannsókn á aldri Hussains var framkvæmd af opinberum aðilum og niðurstaða hennar er að hann hafi verið orðin 18 ára þegar morðið var framið og því hafi mátt dæma hann til dauða samkvæmt lögum landsins. Rannsóknin hefur hins vegar ekki verið gerð opinber.

Hussain var yngstur sjö systkina í litlu þorpi í Kasmír. Hann starfaði sem vaktmaður í Karachi árið 2004 þegar sjö ára gamall drengur, Umair, hvarf á svipuðum slóðum. Nokkrum dögum síðar var hringt úr gsm síma Hussains og lausnargjalds krafist fyrir drenginn upp á hálfa milljón rúpía.  

Hussain var handtekinn og játaði barnsrán og að hafa drepið drenginn. Síðar dró hann játninguna til baka og sagðist hafa játað þegar hann var pyntaður til sagna.

Erfitt hefur reynst að henda reiður á hversu gamall hann er því fæðingarvottorð eru ekki gefin út nema í einstaka tilvikum meðal fátækra í Paksitan.

Fyrir nokkrum mánuðum var fæðingarvottorði Hussains dreift til fjölmiðla en í ljós kom að það var lítið að marka það þar sem það var gefið út í desember í fyrra. Því neituðu yfirvöld að taka mark á því. 

Mælt fyrir fatnaði fyrir aftökuna 1-2 dögum áður

Mannréttindasamtökin Amnesty International telja að um átta þúsund manns séu á dauðadeildum í Pakistan.

CNN birti í gær sláandi frásögn sem höfð er eftir Hussain í fangelsinu:

„Ég er einn í klef­an­um núna. Báðir klefa­fé­lag­ar mín­ar hafa verið hengd­ir. Ég deildi klef­an­um með Muhammad Faisal og Muhammad Afzal. Ég hafði deilt klef­an­um með þeim í sex eða sjö ár.

Ég get ekki einu sinni lýst því hvernig mér leið þegar þeir voru tekn­ir af lífi. Ég náði varla að fylgj­ast með dauða þeirra þar sem það átti að taka mig af lífi dag­inn eft­ir. Mér hef­ur verið tjáð að það eigi að taka mig af lífi sjö sinn­um. Í fyrsta skiptið árið 2013.

Þegar ég fékk til­kynn­ing­una í fyrsta skiptið þá var ég afar áhyggju­full­ur og ráðþrota. Á ein­um tíma­punkti er mér sagt að ég eigi að deyja. Það næsta sem ég veit að ég fái að lifa. Og sé neista von­ar. En þá er mér aft­ur sagt að ég eigi að deyja. Þú verður fórn­ar­lamb and­legs álags,“seg­ir Hussain í sam­tali við CNN.

Í frétt CNN fá orð fang­ans að lifa.

Hussain seg­ir að þeir sem hafa verið dæmd­ir til dauða fái frétt­irn­ar með viku fyr­ir­vara. Frá þeirri stundu er þeim haldið frá öðrum föng­um og þeir velja í sjö daga ein­ir í klefa í bygg­ingu sem hýs­ir þá dauðadæmdu. 

Á hverj­um degi er fang­inn lát­inn gang­ast und­ir and­legt próf og hann vigtaður, blóðþrýst­ing­ur mæld­ur sem og hita­stig lík­am­ans. Síðan er hann mæld­ur hátt og lágt upp á að velja fatnað til þess að hengja fang­ann í. Síðasta dag­inn fær fang­inn að kveðja fjöl­skyldu sína þar sem gengið er frá mál­um hans, til að mynda hvar eigi að jarðsetja hann.

„Flest­ir vilja láta grafa sig við hliðina á þeim sem þeir elska. Við hlið ein­hvers sem hef­ur farið á und­an þeim, til að mynda móður eða föður eða afa eða ömmu, jafn­vel systkini. Ég segi fjöl­skyldu minni að ég vilji hvíla við hlið frænda mín á heima­slóðum,“ Hussain. Það rík­ir þögn í fang­els­inu á af­töku­dög­um.

Umfjöllun CNN

Shafqat Hussain,
Shafqat Hussain, AFP
Pakistaninn Shafqat Hussain
Pakistaninn Shafqat Hussain Af vef Reprive
Lík Hussains borið til hinstu hvílu
Lík Hussains borið til hinstu hvílu AFP
Makhni Begum og Shah Zula foreldrar Shafqat Hussain,
Makhni Begum og Shah Zula foreldrar Shafqat Hussain, AFP
Bróði Shafqats Hussains, Abdul Majeed, bíður hér eftir því að …
Bróði Shafqats Hussains, Abdul Majeed, bíður hér eftir því að fá líkið afhent. AFP
Shafqat Hussain
Shafqat Hussain AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert