27 fórust í lestarslysi

Tvær farþegalestir fóru út af sporinu á Indlandi eftir að flóðbylgja skall á brú sem þær voru að fara yfir. Að minnsta kosti 27 farþegar létust. Björgunarsveitir eru enn að leita að fólki í lestarvögnunum sem fóru fram af brúnni í miklum vatnavöxtum í Madhya Pradesh-ríki.

Um 300 manns var bjargað eftir að tíu lestarvagnar fóru út af sporinu fyrir utan bæinn Harda í gærkvöldi.

Að sögn farþega fylltust vagnarnir af vatni á aðeins nokkrum mínútum þegar flóðbylgja skall á lestinni. 25 voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar meiðsli.

Tvær farþegalestir fóru út af sporinu á Indlandi í gærkvöldi …
Tvær farþegalestir fóru út af sporinu á Indlandi í gærkvöldi þegar flóðbylgja skall á þeim er þær fóru yfir brú. AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert