Herða hryðjuverkalöggjöfina

AFP

Forseti Egyptalands, Abdul Fattah al-Sisi, hefur staðfest ný hryðjuverkalög í landinu en lögin eru sett í kjölfar aukinnar hryðjuverkaógnar. 

Samkvæmt nýju lögunum verða settir sérstakir dómstólar á laggirnar og allir þeir sem gerast sekir um að stofna hryðjuverkahópa verða teknir af lífi. 

Á BBC kemur fram að mannréttindasamtök telji að ríkisstjórn Sisi muni nýta sér lögin til þess að brjóta á bak stjórnarandstöðuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert