Sökuðu rangan Lubitz um morðin

Minnisvarði um fórnarlömbin.
Minnisvarði um fórnarlömbin. AFP

Réttarhöld í máli skaðabótamál karlmanns sem ber saman eftirnafn og aðstoðarflugmaðurinn Andreas Lubitz gegn austurrísku dagblaði hófust í dag.

Maðurinn krefst skaðabóta frá blaðinu sem birti mynd af honum í stað flugmannsins og sakaði hann þar með um að bera ábyrgð á dauða 150 manns sem voru um borð í vélinni sem flugmaðurinn flaug á fjall í frönsku Ölpunum.

Lögmaður mannsins sagði myndina hafa þarf „alvarleg áhrif“ á skjólstæðing sinn sem hafði verið sagður vera fjöldamorðingi. Vélin var á leið frá Barcelona til Dusseldorf þann 24. mars á þessu ári.

Myndin birtist fyrst á Twitter og barst þaðan til dagblaða víða í heiminum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert