Féll sex hæðir og lifði af

Wikipedia

Ellefu ára drengur féll niður sex hæðir af þaki fjölbýlishúss í suðurhluta Parísar, höfuðborgar Frakklands, á þriðjudaginn. Drengurinn lifði fallið af en hann býr í húsinu ásamt fjölskyldu sinni. Nágrannar drengsins sáu hann stökkva frá glugga á íbúðinni sem hann býr í yfir á sillu framan á húsinu. Þegar hann reyndi að stökkva til baka tókst það ekki og hann féll til jarðar.

Haft er eftir einum af nágrönnum drengsins á fréttavefnum Thelocal.fr að hann hafi séð dreginn detta og farið strax til þess að láta móður hans vita en hún hafi ekki verið heima. Hræðilegt upplifun hafi verið að sjá drenginn detta. Drengurinn lifði fallið af sem fyrr segir þar sem hann rakst á fyrirstöðu á leiðinni sem dró úr fallinu og endaði síðan á lausum jarðvegi.

Drengurinn var meðvitundarlaus þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn og hafði fótbrotnað. Hann var fluttur á sjúkrahús og er ástand hans stöðugt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert