Leikari í Vesalingunum féll til bana

Af Twittersíðu Kyle Jean-Baptiste

Kyle Jean-Baptiste, sem var 21 árs gamall og yngsti maðurinn sem lék aðalhlutverkið í Vesalingunum á Broadway lést eftir fall á föstudag.

Í frétt á vef BBC segir að Jean-Baptiste, sem er fyrsti blökkumaðurinn sem fer með aðalhlutverkið, hlutverk Jean Valjean, í Vesalingunum hafi látist eftir að hann féll úr brunastiga. Hann sagði í viðtali í maí að sig hefði dreymt um að fara með hlutverkið síðan hann var lítill strákur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert