Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í útvarpsviðtali á Europe 1 að honum þætti viðhorf sumra Austur-Evrópuþjóða í garð flóttamannastraumsins verða „hneykslanleg“ og benti sérstaklega á víggirðingu sem Ungverjar eru að koma upp.
„Þegar ég ég sé ákveðnar Evrópuþjóðir, sérstaklega í austurhluta Evrópu, sem taka ekki á móti kvótaflóttamönnum, þá finnst mér það hneykslanlegt,“ sagði ráðherrann.
Hann benti sérstaklega á gaddavírsgirðinguna milli Ungverjalands og Serbíu, en síðarnefnda landið er utan Evrópusambandsins. Girðingunni er ætlað að halda flóttamönnum úti. Hann sagði það ekki sýna „virðingu fyrir sameiginlegum gildum Evrópusambandsins.“