Átta, þar af tvö börn, létust í stórbruna í París í nótt. Allt fólkið lést þegar það reyndi að stökkva út um glugga á brennandi fjölbýlishúsinu sem er í átjánda hverfi borgarinnar. Fjórir voru fluttir á sjúkrahús og er ástand þeirra alvarlegt.
Eldurinn braust út um klukkan 4:30 að staðartíma, klukkan hálf þrjú að íslenskum tíma og tóku um 100 slökkviliðsmenn þátt í slökkvistarfinu. Ekki er vitað um eldsupptök en svo virðist sem eldurinn hafi komið upp á jarðhæð hússins og farið upp um stigagang hússins. Um hálf átta í morgun hafði slökkviliðið náð stjórn á eldinum en eldsvoðinn er einn sá versti í París í mörg ár.
Innanríkisráðherra Frakklands, Bernard Cazeneuve, kom á vettvang í nótt og sagði við fjölmiðla að enn væri of snemmt að segja til um ástæðu þessa harmleiks.
Samkvæmt frétt Le Parisien stendur fjölbýlishúsið við rue Myrha, skammt frá Château-Rouge neðanjarðarlestarstöðinni.
Saksóknarar hafa tekið við rannsókn á eldsvoðanum sem þykir benda til að um íkveikju hafi verið að ræða.
Borgarstjóri Parísar, Anne Hidalgo, segir að húsið sé í einkaeigu en ekki borgarinnar en Parísarborg á talsvert af húsnæði á þessum slóðum og leigir þar út íbúðir fyrir borgarbúa með litlar tekjur.