Tók ræningjann hengingartaki

Skjáskot úr myndbandinu.

Þessi seinheppni ræningi í borginni Açailândia í Brasilíu átti ekki von á þeirri útreið sem hann fékk hjá Monique Bastos þegar hann ætlaði að ræna hana. Ræningjanum til lítillar lukku er Bastos þrautþjálfuð í jiu jitsu og var á leiðinni á æfingu.

Hún segir að ræningjarnir tveir hafi komið að henni á mótorhjóli og heimtað símana þeirra. Þegar hún áttaði sig á því að þeir voru óvopnaðir lyfti hún afturhjólinu á mótorhjólinu þeirra og felldi hjólið.

Bastos, sem hefur barist í sex atvinnumannabardögum í MMA, náði fótalás utan um háls árásarmannsins og dró hann á gangstéttina þangað til lögreglan kom kortéri síðar. Eins og sést á þessum myndbandi var ræninginn allt annað en sáttur við þessa meðferð. Á myndbandinu sést hins vegar að Monique Bastos virðist skemmta sér ágætlega.

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="360" src="https://www.youtube.com/embed/RzqVDxDAiPU" width="640"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert