Ellefu ára drengur í St. Louis í Bandaríkjunum, sem skilinn var eftir heima ásamt fjögurra ára gamalli systur sinni, afstýrði nokkrum tilraunum til innbrots á heimilið áður en hann skaut og myrti 16 ára innbrotsþjóf.
Lögregla fann drenginn látinn fyrir framan íbúðarhús í St. Louis um kl. 14 í gær. Hann hafði gert þrjár tilraunir til að brjótast inn í húsið þennan dag. Að sögn vitnis voru tveir drengir fyrir framan húsið þegar drengurinn tók upp byssu og hleypti af. Að sögn vitnisins fór unglingurinn aldrei inn í húsið, heldur hafi hann haldið til á veröndinni fyrir framan það.
Móðir drengsins keypti byssuna eftir að nokkrar tilraunir höfðu verið gerðar til innbrots.