Fannst látinn í Ungverjalandi

Rúmlega fimmtugur karlmaður frá Pakistan fannst látinn skammt frá lestarteinum í Ungverjalandi í dag í kjölfar þess að 350 hælisleitendur lögðu af stað fótgangandi til Austurríkis eftir að þeim var meinað að halda áfram með lest í Búdapest höfuðborg landsins.

Fram kemur í frétt AFP að sjúkraliðar hafi reynt að endurlífga manninn í 50 mínútur en án árangurs. Samkvæmt yfirlýsingu lögreglunnar var maðurinn í hópi þeirra sem héldu af stað gangandi meðfram lestarteinunum. Ekki liggur fyrir hvert banamein hans var.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert