„Hvers vegna dó ég ekki?“

Hvalurinn stökk upp úr sjónum rétt við kajakinn.
Hvalurinn stökk upp úr sjónum rétt við kajakinn. Skjáskot af Youtube

Tveir breskir ferðamenn sluppu naumlega er 40 tonna hnúfubakur stökk upp úr sjónum og lenti ofan á kajak sem þau voru í.

Tom Mustill og Charlotte Kinloch voru að róa á kajak í Monterey-flóa í Kaliforníu er hvalurinn stökk skyndilega upp úr sjónum rétt fyrir framan þau. Hann lenti svo á bát  þeirra og kaffærði hann og þau þar með.

Sjónarvottar segjast hafa óttast um líf parsins er þau hurfu í hafið. En ótrúlegt en satt þá sluppu þau án þess að fá skrámu. Ein beygla kom þó í kajakinn.

Í viðtali við Telegraph lýsir parið reynslu sinni. Kinloch segir augnablikið er hún sá hvalinn hafa verið hræðilegt. Þetta hafi verið eins og bygging væri að hrynja ofan á þau. „Þetta var eins og að lenda í snjóflóði, eins og að strætisvagn væri á leiðinni ofan á okkur,“ segir hún. 

Mustill er vanur því að vera í námunda við villt dýr en hann starfar sem dýralífsljósmyndari. Hann segist enn ekki trúa því að hann hafi lifað þetta af.

„Ég man að ég kom aftur upp á yfirborðið og hugsaði: Hvers vegna dó ég ekki?“ Hann segist hafa hugsað að hann hlyti að vera alvarlega slasaður, en væri of dofinn til að finna sársaukann. 

Parið hafði verið þrjár klukkustundir í kajakferðinni og séð marga hvali í fjarlægð. Þau voru á leið í land er hnúfubakurinn stökk á þau.

Frétt Telegraph

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert