Útgönguspár í Grikklandi gera ráð fyrir því að vinstriflokkurinn Syriza fái um 30-34% atkvæða í þingskosningunum sem fram fóru í dag. Hægriflokkurinn Nýtt lýðræði hefur samkvæmt spánum tryggt sér 28,5-32,5% atkvæða. Búið er að loka kjörstöðum.
Þetta er í fimmta sinn á sex árum sem kosningar fara fram í landinu. Ákveðið var að efna til kosninga í ágúst eftir að Syriza missti meirihluta á þinginu. Vinsældir Alexis Tsipras, leiðtoga Syriza, döluðu verulega eftir að hann samþykkti efnahagsaðgerðir í landinu í samstarfi við leiðtoga Evrópusambandsins. Samkvæmt aðgerðunum verður farið í verulegan niðurskurð í ríkisútgjöldum, þvert á það sem flokkurinn hafði lofað í síðustu kosningum.
Í frétt BBC um málið segir að hingað til hafi útgönguspár í Grikklandi ekki reynst nákvæmar.