Vilja ekki múslíma í Hvíta húsið

Ben Carson fékk hugmyndina að skattastefnu sinni við lestur Biblíunnar.
Ben Carson fékk hugmyndina að skattastefnu sinni við lestur Biblíunnar. AFP

Ben Carson, sem sækist eftir útnefningu Repúblikana sem forsetaefni á næsta ári segir múslíma óhæfa til að gegna embætti forseta Bandaríkjanna. Hann segir að trú þeirra sé ekki í samræmi við bandarískar lífsskoðanir. Þetta sagði Carson í þætti á NBC-sjónvarpsstöðinni í dag. 

„Ég er ekki talsmaður þess að múslími verði fenginn til að leiða þessa þjóð. Ég myndi alls ekki samþykkja það,“ sagði Carson. 

Carson hefur á undanförnum vikum verið næstefstur í fylgiskönnunum á frambjóðendum Repúblikanaflokksins. Aðeins Donald Trump nýtur meiri hylli meðal kjósenda flokksins. Carson datt reyndar niður í þriðja sætið eftir kappræður á CNN-sjónvarpsstöðinni í síðustu viku og naut þá 14% fylgis. Carly Fiorina, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hewlett-Packard, stökk upp í annað sætið með um 15% fylgi.

Carson er kristinn og sagðist hafa fengið hugmynd að skattastefnu sinni úr Biblíunni. Hann sagði í viðtalinu í dag að trúarbrögð forseta yrðu að passa við stjórnarskrá landsins. Spurður hvort íslam passaði við þá skilgreiningu hans, svaraði hann: „Nei. Það finnst mér ekki.“

Samtök múslíma í Bandaríkjunum hafa gagnrýnt ummæli Carsons og segja að þau dæmi hann úr leik í forsetakjörinu þar sem stjórnarskrá Bandaríkjanna kveði á um að ekki skuli mismuna fólki, m.a. til opinberra starfa, vegna trúarbragða. 

Auðmaðurinn Donald Trump var einnig í viðtali hjá NBC í dag og var spurður hvort hann myndi samþykkja múslíma sem forseta. „Sumir segja að það hafi þegar gerst,“ svaraði Trump en hann hefur ítrekað gefið í skyn að hann telji Barack Obama, Bandaríkjaforseta, ekki kristinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert