Barack Obama Bandaríkjaforseti hvatti í dag þjóðir Evrópu til að taka á móti „sanngjörnum skerf“ flóttafólks eftir að Evrópusambandið náði með herkjum samkomulagi sem er ætlað að mæta flóttamannastraumnum til Evrópu.
Eftir símtal við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sagði forsetinn í yfirlýsingu að „leiðtogarnir tveir væru sammála um nauðsyn þess að fundin væri lausn sem öll Evrópa tæki þátt í þar sem öll ríki sambandsins taki á móti sanngjörnum fjölda flóttamanna.“
Líkur eru á að yfirlýsingin verð álitin viðvörun til Ungverjalands, Tékklands, Rúmeníu og Slóvakíu sem settu sig árangurslaust upp á móti samningi um að koma 120.000 flóttamönnum til nýrra heimkynna í Evrópu.
Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, var meðal þeirra sem sagðist ekki mundu taka þessari „skipun“ frá Brussel þegjandi.
Skilaboðin frá hvíta húsinu muni eftir sem áður ekki vega jafnþungt og forsetinn hefði viljað þar sem Bandaríkin hafa ekki verið álitin stór þátttakandi í mannúðaraðgerðum í heimalandi flóttamannanna, Sýrlandi. Bandaríkin hafa lýst því yfir að þau muni aðeins taka á móti 10.000 flóttamönnum.