Myrt fyrir að stela smokkum

mbl.is/Eggert

Þýskur faðir hefur viðurkennt að hafa myrt 19 ára gamla dóttur sína með því að kyrkja hana. Morðið átti sér stað í kjölfar þess að dóttirin var gripin við að stela smokkum úr verslun til þess að geta sofið hjá kærastanum sínum.

Fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins Independent að bæði faðirinn Asadullah Khan og eiginkona hans Shazia séu ákærð fyrir morðið á dóttur þeirra, Lareeb Khan, en þau búa í bænum Darmstadt í Þýskalandi. Faðirinn sagði fyrir dómi að dóttir hans hefði að hans áliti kallað vansæmd yfir fjölskylduna með sambandi sínu við kærastann án samþykkis síns. Hann hafi viljað finna maka fyrir hana með sama hætti og hefði verið gert í hans tilfelli.

Lesin var upp yfirlýsing í dómsalnum frá Shazia þar sem kom fram að dóttir þeirra hjóna hefði verið að heiman nokkrar nætur í röð og hætt að ganga með slæðu. Þá hefði fjölskyldan fengið bréf frá lögreglunni þess efnis að hún hefði verið handtekin við að reyna að stela smokkum. Þar með hafi verið ljóst að dóttirin væri að stunda kynlíf. Faðir hennar hefði orðið mjög reiður þegar hann hefði séð bréfið.

Fram kom við réttarhöldin að 14 ára yngri dóttir hjónanna hefði verið send í gistingu hjá ættingjum yfir nóttina sem systir hennar var myrt i janúar á þessu ári. Shazia sagði að Lareeb hefði slegið föður sinn þá um kvöldið í rifrildi. Faðir hennar hefði um nóttina farið inn í herbergi hennar og kyrkt hana. Shazia sagðist vera undirokuð í hjónabandinu og að hún hafi ekkert getað gert til þess að koma í veg fyrir morðið.

Hjónin klæddu lík Lareeb í föt eftir að hún var látin. Líkinu var síðan komið fyrir í hjólastól og því ekið út í bifreið þeirra. Þau óku á kyrrlátan stað í bænum og skildu líkið þar eftir. Yngri systir Lareeb hafnaði því fyrir dómi að móðir hennar væri undirokuð. Hún hefði farið sínu fram og meðal annars lamið sig með priki. Yngri dóttirin hefur slitið öll tengsl við foreldra sína í kjölfar morðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert