Gerðu loftárás á læknamiðstöð

AFP

Að minnsta kosti þrír starfsmenn hjálparsamtakanna Læknar á landamæra, (Medecins Sans Frontieres), létust í afgönsku borginni Kunduz þegar loftárás var gerð á borgina. 

Læknastöð þeirra í borginni varð fyrir flugskeyti en Bandaríkjaher var að gera loftárás á borgina á þessum tíma. Fjölþjóðaher Atlantshafsbandalagsins viðurkennir að svo geti verið að loftárásir þeirra hafi hæft starfstöð hjálparsamtakanna.

Samkvæmt frétt BBC er ekki vitað um afdrif 30 starfsmanna Lækna án landamæra á læknastöðinni en 105 sjúklingar voru þar þegar árásin var gerð.

Helena Jónsdóttir sálfræðingur hefur í ár starfað á vegum Lækna án landamæra í Kunduz en er komin til Noregs. Hún var í Kunduz þangað til á mánudag.

Harðir bardagar hafa geisað í Kunduz frá því talibanar réðust inn í borgina á mánudag. Kunduz er fyrsta mikilvæga borgin sem fellur í hendur talibana í fjórtán ár.

Tilkynning frá Læknum án landamæra

AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert