Ógnað af óþekktri orrustuþotu

Orrustuþota af gerðinni MiG-29.
Orrustuþota af gerðinni MiG-29. Wikipedia

Orrustuþota af gerðinni MiG-29 ógnaði tveimur tyrkneskum F-16 orrustuþotum í gær við landamæri Tyrklands að Sýrlandi. Samkvæmt upplýsingum frá tyrkneskum stjórnvöldum er ekki vitað hvers lensk orrustuþotan er. Atburðurinn stóð yfir í rúmar fjórar og hálfa mínútu.

Rifjað er upp að tyrkneskar F-16 orrustuþotur hafi neytt rússneska orrustuþotu til þess að yfirgefa lofthelgi Tyrklands við landamærin að Sýrlandi eftir að þotan hafði rofið hana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert