Samtök sem vilja takmarka skotvopnaeign í Bandaríkjunum hafa kallað eftir því að lögreglustjórinn í Douglas-sýslu, John Hanlin, segi af sér. Hanling hefur stýrt rannsókn á fjöldamorði sem varð í Oregon í síðustu viku.
Alls voru átta nemendur og einn kennari skotnir til bana í Umqua-háskólanum í Roseburg í Oregon. Enn á ný hefur hafist umræða og deilur um byssueign og aðgang að skotvopnum í Bandaríkjunum.
Samtökin, Brady Campaign to Prevent Gun Violence, fullyrða að skoðanir Hanlin á byssulöggjöfinni séu öfgakenndar, að þvi er segir á vef breska ríkisútvarpsins.
Þar segir að Hanlin hafi margsinnis mótmælt hugmyndum um að herða byssulöggjöfina í landinu og takmarka skotvopnaeign.
Árið 2013 skrifaði hann að hann myndi ekki framfylgja nýrri byssulöggjöf í kjölfar fjöldamorðanna í Sandy Hook.
Samtökin benda á, að Hanlin hafi með ummælunum sýnt fram á að pólitískar skoðanir hans hafi meira vægi heldur en að vernda samfélagið.
Hanlin sagði sl. föstudag að skoðanir hans á byssulöggjöfinni tengist rannsókn málsins ekki á neinn hátt. Hann sagðist einblína á að ljúka rannsókninni og hlúa að fjölskyldum fórnarlambanna. „Það er ekki við hæfi að ræða þessi mál nú,“ sagði hann ennfremur.