Karl Filippus verður guðfaðir

Nikulás verður borinn til skírnar um helgina.
Nikulás verður borinn til skírnar um helgina. Ljósmynd/Kungahuset.se

Nikulás Svíaprins, sonur Madeleine Svíaprinsessu og Chris O'Neill verður færður til skírnar á sunnudaginn. Meðlimir sænsku konungsfjölskyldunnar verða viðstaddir ásamt nánum vinum hjónanna. Karl Filippus, bróðir Madeleine, verður guðfaðir drengsins.

Karl Filippus er 36 ára. Hann gekk að eiga unnustu sína Sofiu þann 13. júní og kom frændi hans í heiminn tveimur dögum síðar. Hann er þegar guðfaðir Estelle, þriggja ára systur Nikulásar.

Nikulás heitir fullu nafni Nikulás Páll Gústaf. Hann er sjötti í röðinni að sænsku krúnunni. Fjölskyldan flutti til Lundúna eftir fæðingu drengsins og munu þau búa þar næstu tvö árin

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert