Linnulausar árásir í Sýrlandi

AFP

Rússneskar herþotur gerðu fjölmargar loftárásir á tvö sýrlensk þorp í nótt, samkvæmt upplýsingum frá mannréttindasamtökunum Syrian Observatory for Human Rights. Ekki hafa borist fréttir af mannfalli en að sögn framkvæmdastjóra samtakanna voru árásirnar harðari í nótt en undanfarna daga.

Meðal annars skutu þær á fjóra staði í Hama héraði og þrjá staði í Idlib héraði. Á sama tíma var barist á landi á sama tíma en um samræmdar aðgerðir Rússa og stjórnarhers Sýrlands var að ræða.

Her Rússlands hefur gert harða hríð á skotmörk í Hama og Idlib að undanförnu en stjórnvöld í Moskvu segja að árásirnar beinist að skæruliðum Ríkis íslams.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert