Kyrkti eiginkonuna sem ætlaði að sækja um skilnað

Austurríska lögreglan að störfum - mynd úr safni
Austurríska lögreglan að störfum - mynd úr safni AFP

Lögreglan í Vín hefur handtekið mann á fertugsaldri sem kyrkti eiginkonu sína í gær en hún ætlaði að sækja um skilnað frá honum. Maðurinn hafði ítrekað beitt hana ofbeldi þrátt fyrir að hún hafi aldrei kært hann fyrir heimilisofbeldi. Þetta kemur fram í frétt The Local.

Þar segir að maðurinn hafi sjálfur haft samband við lögreglu og sagt að hann hafi kyrkt konu sína. Að sögn vina hennar hafði hún haft samband við lögfræðing vegna þess að hún vildi óska eftir skilnaði við manninn.

Hjónin eiga þrjár stúlkur sem eru þriggja, fjögurra og sjö ára að aldri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert