Grænmetisætur viðurkenna kjötát á djamminu
Þriðjungur grænmetisætna borða kjöt þegar þær eru undir áhrifum áfengis. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem sagt er frá á vef The Telegraph.
Einn af hverjum þremur sem tóku þátt í rannsókninni sögðust borða kjöt í hvert skipti sem þeir væru undir áhrifum áfengis. Kebab með kjöti og hamborgarar var algengasta kjötið sem fólk sagðist borða á djamminu. Um 39% þeirra sem viðurkenndu kjötát á djamminu sögðust borða kebab kjöt á meðan 34% kjósa hamborgara. 27% „grænmetisætanna“ sögðust borða beikon á meðan 19% stunduðu það að borða steiktan kjúkling. Um 14% sögðust helst borða pylsur.
69% þeirra sem viðurkenndu kjötát undir áhrifum áfengis sögðust þó ekki segja neinum frá átinu. Rannsóknin var gerð af vefsíðunni Voucher Codes Pro sem sérhæfir sig í því að sýna hvernig hægt sé að spara peninga. Í rannsókninni voru 1.789 grænmetisætur í Bretlandi spurðar álits.


