Að minnsta kosti þrjátíu eru látnir og 126 særðir eftir að tvær sprengingar áttu sér stað í friðargöngu í tyrknesku höfuðborginni Ankara í morgun. Kemur þetta fram í tilkynningu frá tyrkneska innanríkisráðuneytinu.
Stjórnvöld í Tyrklandi telja að sprengingarnar hafi verið árás hryðjuverkamanna. „Okkur grunar að það séu tengsl við hryðjuverkamenn,“ hefur fréttaveita AFP eftir ónafngreindum heimildarmanni úr röðum ríkisstjórnarinnar.
Stjórnarandstaðan hafði skipulagt fjöldafund til að kalla eftir því að stjórnvöld bindi enda á ofbeldi gegn PKK, sem er uppreisnarhópur tyrkneskra Kúrda. HDP-flokkurinn, sem nýtur stuðnings margra Kúrda í Tyrklandi, er á meðal þeirra flokka sem komu að því að skipuleggja friðargönguna.
Átti hún að hefjast klukkan 12 að staðartíma við aðallestarstöð borgarinnar. Fjöldi fólks var þó þegar kominn saman er sprengingarnar áttu sér stað, klukkan rúmlega 11 að staðartíma.
Tyrkneska lögreglan hefur gripið til þess ráðs að skjóta úr byssum sínum í loftið til að reyna að tvístra mótmælendum á svæði árásarinnar, samkvæmt fréttaritara AFP. Kölluðu þeir lögreglumennina morðingja en hurfu á brott eftir að öryggissveitir skárust í leikinn.
Sjá frétt mbl.is: Sprengingar í Ankara