Segja páfann ekki vera með æxli

Frans páfi er 78 ára.
Frans páfi er 78 ára. AFP

Vatíkanið segir ekki rétt að Frans páfi sé með lítið en læknanlegt æxli í heila. Ítalska blaðið Quotidiano greinir frá því að páfinn hafi ferðast með þyrlu til Toscana á Ítalíu til að hitta japanskan heilaskurðlækni eftir lítill, dökkur blettur kom í ljós á heila hans.

Talsmaður Vatíkansins segir fréttir blaðsins úr lausi lofti gripnar, ekkert sé til í þeim. Páfinn taki nú sem áður virkan þátt í ýmsum viðburðum.

Ítalska blaðið segir heimildarmann sinn vera ónefndan starfsmann einkasjúkrahúss sem páfinn er sagður hafa leitað til. 

BBC greinir frá

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert