Hrópuðu nafn Allah

Ástandið í París eftir tilræðin í gærkvöldi var eins og …
Ástandið í París eftir tilræðin í gærkvöldi var eins og á vígvelli. Hér eru aðgerðir í gangi í götunni Rue Oberkampf skammt frá tónleikastaðnum Bataclan. mbl.is/afp

Tónleikagestir sem komust lífs af úr árásinni á tónleikahúsið Bataclan segja að hryðjuverkamennirnir hafi hrópað nafn Guðs, „Allah Akbar“, í sífellu er þeir réðust inn á staðinn.

Engin samtök hafa lýst ábyrgð á hryðjuverkunum í París á hendur sér. Í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi vegna voðaverkanna sagði François Hollande forseti, að vitað væri hverjir tilræðismennirnir væru.

„Við vitum hverjir glæpamennirnir eru, hverjir hryðjuverkamennirnir eru,“ sagði Hollande.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert