16 særðust í skotárás í New Orleans

Að minnsta kosti 16 særðust í skotárás í Bunny Friend …
Að minnsta kosti 16 særðust í skotárás í Bunny Friend Park í New Orleans, Louisiana. AFP

Að minnsta kosti sextán særðust í skotbardaga í almenningsgarði í New Orleans í gærkvöldi en fjölmargir voru í garðinum við tökur á tónlistarmyndskeiði þegar tveir hópar hófu skothríð hvor á annan.

Að sögn talsmanns lögreglunnar voru tíu fluttir á sjúkrahús með sjúkrabílum en aðrir leituðu sér sjálfir læknisaðstoðar. Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að skotbardaginn braust út né heldur hversu alvarlega sárir hinir særðu eru.

Allt bendir til þess að um 500 manns hafi verið í garðinum í tveimur hópum, annar hafi tekið þátt í skrúðgöngu en hinn hafi verið þar við upptökur á tónlistarmyndskeiði. En allt í einu hafi tveir vopnaðir menn hafið skothríð á mannfjöldann, samkvæmt fréttum Washington Post og BBC.

Frá garðinum í New Orleans, Louisiana.
Frá garðinum í New Orleans, Louisiana. AFP
AFP
AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert