Tollvörður skotinn til bana

AFP

Franskur tollvörður var skotinn til bana og tveir lögreglumenn særðust í Toulon í morgun.

Skotárásin átti sér stað í Saint Jean du Var í morgun en um áhlaup sem beindist gegn vopnasmyglurum.

Byssumaðurinn var vopnaður M16 árásarriffil og skaut að lögreglu og tollvörðum. Annar tollvörður slasaðist alvarlega en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl lögreglumannanna eru.

Árásarmaðurinn var handtekinn en samkvæmt frétt Le Parisien er félagi hans á flótta.

Franska lögreglan leitar nú uppi vopnasmyglara en gríðarlegt magn ólöglegra vopna eru í umferð í landinu.

Frétt Le Parisien

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert