Lögfræðingur í Sádi-Arabíu, sem situr í fangelsi í heimalandi sínu fyrir mannréttindabaráttu, hlaut í dag virt mannréttindaverðlaun í Sviss.
Walid Abulkhair er þekktur fyrir að hafa verið verjandi Raif Badawi sem dæmdur var til að þola þúsund svipuhögg og sæta tíu ára fangelsi fyrir að móðga íslam með skrifum sínum. Mál Badawi vakti gríðarlega athygli um heim allan en Abulkhair stýrir einnig mannréttindasamtökum í Sádi-Arabíu.
Abulkhair var dæmdur í fimmtán ára fangelsi í fyrra fyrir að sverta ríkið og móðga dómskerfið.
Sá fyrsti til að hljóta Ludovic Trarieux International Human Rights verðlaunin var Nelson Mandela sem einnig sat í fangelsi í heimalandi sína fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnu þáverandi stjórnvalda í Suður-Afríku, fyrir 30 árum. Það eru evrópsk samtök sem veita verðlaunin lögfræðingum sem hafa varið mannréttindi og barist gegn umburðarleysi og rasisma.
„Við vonum að verðlaunin muni leika hlutverk í að fá ákveðið fólk laust úr ánauð,“ segir formaður dómnefndarinnar, Jean-Marc Carnice.