Þessi sprengir „krúttskalann“

Charlotte prinsessa.
Charlotte prinsessa. Hertogaynjan af Cambridge

Hertoginn og hertogaynjan af Cambridge, Vilhjálmur og Katrín, hafa birt tvær myndir af Charlotte dóttur sinni á facebooksíðu bresku konungsfjölskyldunnar í morgun. Það er óhætt að segja að litla prinsessan sprengi „krúttskalann“ á myndunum.

Á síðunni segir að hertogaynjan hafi tekið myndinar á heimili fjölskyldunnar í Norfolk fyrr í mánuðinum. Þar kemur fram að þau þau fái hlýjar kveðjur tengdar Charlotte alls staðar að úr heiminum og þau voni að allir gleðjist yfir þessum myndum af henni líkt og þau gera sjálf.

Charlotte prinsessa fæddist 2. maí sl. og er annað barn foreldra sinna en George bróðir hennar er tæpum tveimur árum eldri.

Sjá nánar hér

Charlotte prinsessa.
Charlotte prinsessa. Ljósmynd hertogaynjan af Cambridge
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert