Yfir 3.500 teknir af lífi

AFP

Ríki íslams hefur tekið yfir 3.500 af lífi í Sýrlandi, þar á meðal tæplega tvö þúsund óbreytta borgara frá því hryðjuverkasamtökin lýstu yfir kalífaveldi í júní í fyrra.

Í síðasta mánuði voru 53 teknir af lífi, þar á meðal 35 óbreyttir borgarar, á svæðum sem samtökin ráða ríkjum í Sýrlandi, samkvæmt upplýsingum frá mannúðarsamtökunum Syrian Observatory for Human Rights.

Alls hafa 1.945  almennir borgarar verið teknir af lífi, þar á meðal 103 konur og 77 börn. En þeir eru taldir almennir borgarar sem ekki taka þátt í bardögum af neinu tagi.

Yfir 250 þúsund hafa verið drepnir og meira en fjórar milljónir hafa flúið land frá því borgarastyrjöldin braust út í Sýrlandi árið 2011.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert