Festist í strompi og lést

Fólkið kveikti upp í arninum án þess að gera sér …
Fólkið kveikti upp í arninum án þess að gera sér grein fyrir að maður væri fastur í strompinum. Af Wikipedia

Maður sem ætlaði að brjótast inn í hús í Kaliforníu með því að fara í gegnum skorstein þess lést eftir að íbúarnir kveiktu upp í arninum. Þeir gerðu sér ekki grein fyrir að maður væri í strompinum. 

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar fór maðurinn ofan í strompinn að næturlagi á meðan húsið var mannlaust. Hann festist hins vegar. Þegar eigendurnir komu heim á síðdegis á laugardag kveiktu þeir upp í arni sínum. Húsið fylltist fljótlega af reik. 

Fólkið reyndi þá að slökkva eldinn. Slökkvilið var kallað til og braut það niður strompinn til að reyna að slökkva eldinn. Þá komust slökkviliðsmennirnir að hinu sanna: Maður sat fastur í strompinum. Hann var þá þegar látinn. 

Hinn látni var nítján ára. Hann lést vegna reykeitrunar og brunasára, segir í frétt Reuters um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert