Hyggst gefa 99% hlutabréfa sinna

Hjónin Mark Zuckerberg og Priscilla Chan ásamt dóttur sinni Max.
Hjónin Mark Zuckerberg og Priscilla Chan ásamt dóttur sinni Max. AFP

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, og eiginkona hans, Priscilla Chan, greindu frá því í kvöld að þau hyggist gefa 99% hlutabréfa sinna í félaginu til góðgerðarmála. Þetta kemur fram á Facebooksíðu Zuckerbergs, en hjónin hafa jafnframt greint frá fæðingu dóttur þeirra, Max.

Zuckerberg segir að þau hjónin ætli að gefa auðæfin vegna þess að þau vilji bæta heiminn sem dóttir þeirra muni erfa og alast upp í.

Hlutabréfin eru metin á um 45 milljarða Bandaríkjadala, eða sem samsvarar 5.900 milljörðum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert