Grikkir samþykktu niðurskurð

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, á gríska þinginu í dag.
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, á gríska þinginu í dag. AFP

Fjárlög sem fela í sér niðurskurð, aðhaldsaðgerðir og skattahækkanir voru samþykkt með naumum meirihluta á gríska þinginu í dag. 

Alls samþykktu 153 þingmenn frumvarpið en 145 höfnuðu því og munaði því einungis átta atkvæðum. Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, sagði á þinginu að fjárlög næsta árs hefðu verið erfitt verkefni fyrir ríkisstjórn sem leggur áherslu á samfélagslegan jöfnuð.

Í ágúst féllst gríska þingið á niðurskurð og skattahækkanir sem skilyrði fyrir 85 milljarða evra björg­un­ar­pakka alþjóðlegra lána­stofn­ana.

Frumvarpið felur í sér niðurskurð er hljóðar upp á 5,7 milljarða evra og þar á meðal 1,8 milljarða niðurskurð í lífeyrissjóðakerfinu og 500 milljóna evra niðurskurð í varnarmálum. Þá felur það í sér tveggja milljarða evra skattahækkanir.

Þrátt fyrir þetta eykst halli ríkissjóðs milli ára.

Frétt BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert