Tók myndir undir pils konu

Maðurinn tók myndir upp undir pils konunnar.
Maðurinn tók myndir upp undir pils konunnar. Frá lögreglunni í London

Lögreglan í London hefur birt myndir úr öryggismyndavélum af manni sem tók myndir upp undir pils konu í verslun Boots í borginni.

Athæfi mannsins náðist á upptöku í versluninni í Tandem Centre þann 5. nóvember. 

Lögreglan segir að maðurinn hafi rölt um búðina á eftir konunni og þóst vera að skoða vörur. Síðan tekur hann upp síma sinn og stingur honum milli fóta hennar og tekur margar myndir. Öryggisvörður tók hins vegar eftir þessu, kom til hans og skipaði honum að eyða myndunum. Hann yfirgaf verslunina þá samstundis.

Lögreglan óskar eftir upplýsingum um þennan mann, segir í frétt Sky.

Moment alleged voyeur takes photos up woman's skirt in Collier...

Police are appealing for information after disturbing CCTV shows a suspected voyeur crouching down to take photographs up a woman's skirt.

Posted by The Telegraph on Friday, December 11, 2015

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert