1 látinn og 37 slasaðir í Las Vegas

AFP

Að minnsta kosti einn lést og 37 slösuðust þegar bifreið var ekið upp á gangstétt í Las Vegas Strip í gærkvöldi. Bílstjórinn er í haldi lögreglu en hann ók bifreiðinni á mikilli ferð inn í mannþröngina. 

Nokkrir þeirra sem eru slasaðir eru í lífshættu, að sögn lögreglu í Las Vegas. 

CNN hefur eftir slökkviliðsmönnum að sjö séu í lífhættu og að ekki sé ljóst hvort um slys var að ræða eða ásetning ökumannsins og vill lögregla aðeins segja að rannsókn sé í gangi.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert