Merkel áhrifamest allra árið 2015

Kanslari Þýskalands Angela Merkel
Kanslari Þýskalands Angela Merkel AFP

Blaðamenn AFP fréttastofunnar völdu Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, áhrifamesta mann ársins 2015. Það eru einkum afskipti hennar af flóttamannavandanum í Evrópu og fjármálakreppunnar í Grikklandi sem skýra val blaðamannanna.

Í atkvæðagreiðslu meðal allra starfsmanna á ritstjórnum AFP út um heim allan hafnaði Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, í öðru sæti listans yfir áhrifamesta fólkið í heiminum árið 2015. Í fyrra var Pútín í fyrsta sæti listans. 

Vladimír Pútín
Vladimír Pútín EPA

Merkel vakti heimsathygli þegar hún opnaði landamæri Þýskalands fyrir flóttafólki og í augum margra sýrlenskra og afganskra flóttamanna er hú „Mama Merkel“. Stefna Merkel vakti hins vegar litla hrifningu meðal ýmissa starfsbræðra hennar í Evrópu. 

Eins gegndi hún lykilhlutverki í að koma á samkomulagi um fjármál Grikklands sem rambaði enn einu sinni á barmi gjaldþrots. Merkel var einnig valin maður ársins hjá Time tímaritinu.

Pútín var áberandi í fréttum ársins líkt og undanfarin ár. Segja má að forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, eigi Pútín að þakka að hann gegnir enn starfi forseta Sýrlands og um leið að ekki hafi tekist að binda endi á stríðið í Sýrlandi sem hefur geisað í meira en fjögur ár.

Frans páfi
Frans páfi AFP

Frans páfi er í þriðja sæti listans. Meðal þess sem nefnt er varðandi tilnefningu hans eru afskipti hans af samskiptum Bandaríkjanna og Kúbu og friðarferlinu í Kólumbíu.

Parísarbúar sýndu samstöðu í janúar í kjölfar árásanna en alls …
Parísarbúar sýndu samstöðu í janúar í kjölfar árásanna en alls tóku um 1,5 milljón borgarbúa þátt í samstöðufundi á Place de republique AFP

Parísarbúar skipa fjórða sætið en 1,5 milljón borgarbúa tóku þátt í samstöðufundum eftir hryðjuverkaárásirnar í janúar. París varð fyrir öðru höggi í nóvember þegar 130 létust í hryðjuverkaárásum í borginni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert