Diplómatísku sambandi landanna slitið

Mótmæli fyrir utan sendiráð Sádi-Arabíu í Ankara, höfuðborg Tyrklands, í …
Mótmæli fyrir utan sendiráð Sádi-Arabíu í Ankara, höfuðborg Tyrklands, í dag. AFP

Sádi-Arabar hafa slitið diplómatískum tengslum landsins við Íran. Um þetta tilkynnti utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, Adel al-Jubeir, fyrir skemmstu. Sagði hann að allir erindrekar Írans þyrftu að vera farnir frá Sádi-Arabíu innan tveggja sólarhringa.

Ákvörðun Sádi-Araba fylgir í kjölfar reiðiöldu sem beinst hefur gegn stjórnvöldum í Sádi-Arabíu vegna aftöku á sjítaklerk í gærmorgun. Múgur réðst á sendiráð Sádi-Arabíu í Tehran, höfuðborg Írans, í gær þegar mótmælt var aftökunni.

Sjítaklerkurinn Nimr al-Ni­mrs var tekinn af lífi í gær ásamt 46 öðrum og hafa stjórnmála- og trúarleiðtogar sakað yfirvöld í Sádi-Arabíu um að hafa ráðist viljandi á samfélag sjíta um allan heima.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert