Kappræður í kvöld en enginn Trump

Fólk er mætt á fjöldafund Trump í Iowa.
Fólk er mætt á fjöldafund Trump í Iowa. AFP

Í kvöld fara fram kappræður frambjóðenda í forvali repúblikana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Einn áberandi frambjóðandi, Donald Trump, verður ekki á staðnum.

Trump, sem er með mesta fylgið af frambjóðendunum mun halda fjöldafund til styrktar fyrrverandi hermanna á sama tíma sem gæti dregið athyglina frá kappræðunum. Aðeins eru nokkrir dagar í fyrstu forkosningarnar, sem fara fram í Iowa. Trump ákvað að taka ekki þátt í kappræðunum eftir að Fox News hélt því til streitu að fréttakonan Megyn Kelly myndi stjórna kappræðunum. Trump telur að Kelly sé hlutdræg gegn honum.  

Litið er á forkosningarnar í Iowa sem fyrsta próf frambjóðendanna. Kosið verður í öllum ríkjum Bandaríkjana og eru síðustu forkosningarnar í júní.

Kelly stjórnaði fyrstu sjón­varp­s­kapp­ræðum fram­bjóðenda re­públi­kana í ág­úst og spurði Trump ým­issa krefj­andi spurn­inga. Eft­ir kapp­ræðurn­ar gaf Trump í skyn að Kelly hafi verið ósann­gjörn við hann vegna þess að hún væri á blæðing­um.

„Hún kem­ur út og hún byrj­ar að spyrja mig alls kyns fá­rán­legra spurn­inga. Maður gat séð að blóð kom út um aug­un á henni, blóð kom út úr ein­hverju á henni,“ sagði Trump í viðtali við CNN í ág­úst.

Frétt BBC. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert