Millepied hættir öllum af óvörum

Benjamin Millepied
Benjamin Millepied AFP

Aðalstjórnandi dansflokks Parísaróperunnar, Benjamin Millepied, tilkynnti í dag að hann ætlaði að láta af störfum hjá óperunni rúmlega ári eftir að hann tók við starfinu sem er eitt það merkasta innan dansheimsins.

Millepied segir að hann hafi ákveðið að hætta störfum sem stjórnandi dansflokksins þar sem hann vill einbeita sér að sköpun ekki stjórnun. Millepied er fyrrverandi ballettdansari og er kvæntur leikkonunni Natalie Portman en þau kynntust við gerð kvik­mynd­ar­inn­ar Black Swan. Portman fór þar með aðal­hlut­verkið og hlaut Óskar­sverðlaun­in fyr­ir. Benjam­in var hins veg­ar höf­und­ur dansa í kvik­mynd­inn.

Millepied ætlaði sér að gera róttækar breytingar á stofnuninni þegar hann tók við en hefur mætt harðri andstöðu en ballett Parísaróperunnar er helsta vígi klassísks balletts í heiminum. 

Benjamin Millepied,
Benjamin Millepied, AFP
Benjamin Millepied
Benjamin Millepied AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert