Níu ára kveikti í með sígarettu

Wikipedia

Töluverðar skemmdir urðu á íbúð í Salzburg í Austurríki á miðvikudagskvöldið eftir að eldur kom upp í henni. Ellefu ára drengur varð eldsins var og vakti móður sína sem kom honum og tveimur systrum hans út úr húsinu ásamt tveimur heimilisköttum.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn en þegar farið var að rannsaka möguleg eldsupptök viðurkenndi níu ára gömul dóttir konunnar að hún hefði verið að reykja sígasettu í herbergi á efri hæð íbúðarinnar í laumi. Hún hefði talið sig hafa slökkt í sígarettunni og skilið hana eftir í rúmi í herberginu. Engum varð hins vegar meint af eldinum.

Fréttavefurinn Thelocal.at greinir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert