Fórnarlamb ponzi-svikamyllu

Benoît Violier
Benoît Violier AFP

Franski matreiðslumaðurinn Benoît Violier, sem framdi sjálfsvíg fyrir rúmri viku, var fórnarlamb fjársvika, ponzi-svindls, og var afar skuldsettur, segir í frétt Daily Mail í gær og er þar vísað í frétt svissnesks viðskiptatímarits, Bilan.

Frá útför Benoît Violier í síðustu viku
Frá útför Benoît Violier í síðustu viku AFP

Í frétt Daily Mail segir að Violier, sem var 44 ára gamall eigandi veitingastaðarins Restaurant de l'Hotel de Ville, hafi verið fórnarlamb svikamyllu svissnesks vínfyrirtækis, Private Finance Partners, með höfuðstöðvar í Sion. Veitingastaður Violiers er í Crissier, skammt frá Laus­anne, og var staður­inn val­inn sá besti í heimi af La Liste í des­em­ber. Staður­inn er með þrjár Michel­in-stjörn­ur. 

Benoît Violier
Benoît Violier AFP

 

Í Daily Mail kemur fram að svindlið hafi falist í því að vínfyrirtækið seldi fágæt vín á 14.000-27.500 pund, 2,6-5 milljónir krónur flaskan, til veitingastaða en vínið hafi hins vegar aldrei skilað sér til veitingastaðanna. Hver flaska var seld til þriggja eða fjögurra veitingastaða sem síðan sátu eftir með sárt ennið.

Tap Violiers vegna þessa nam 1,37 milljónum punda, sem svarar til 254 milljóna íslenskra króna.

Daily Mail

Stjörnugjöf í skugga sjálfsvígs

Stjörnukokkur fannst látinn

Benoît Violier
Benoît Violier AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert