Fleiri konur kusu Sanders en Clinton

Bernie Sanders, öldungadeildarþingmaður frá Vermont, fékk góðan byr í forkosningum demókrata í New Hampshire í fyrradag en líklegt er að hann lendi í mótbyr á næstu vikum þegar kosið verður í suðurríkjum Bandaríkjanna takist honum ekki að auka fylgi sitt meðal blökkumanna og kjósenda sem eru ættaðir úr Rómönsku Ameríku. Útlit er fyrir langvinna baráttu í forkosningum repúblikana eftir öruggan sigur auðkýfingsins Donalds Trumps í New Hampshire og eins og staðan er núna virðist enginn keppinauta hans vera nógu öflugur til að geta sigrað hann og verða forsetaefni flokksins.

Bernie Sanders er 74 ára gamall og elsti frambjóðandinn í forkosningum flokkanna tveggja, en kannanir sem gerðar voru fyrir utan kjörstaði benda til þess að hann sæki einkum fylgi sitt til ungra kjósenda. Mikið fylgi hans meðal ungra kvenna er áhyggjuefni fyrir Hillary Clinton sem vonast eftir því að verða fyrsta konan til að gegna forsetaembættinu. Könnun NBC-sjónvarpsins bendir til þess að 69% kjósenda úr röðum kvenna undir 45 ára aldri hafi kosið Sanders í New Hampshire. Meðal kvenna undir þrítugu var fylgi hans hvorki meira né minna en 82%. Aðeins 16% karla og kvenna undir þrítugu kusu Hillary Clinton, ef marka má kannanirnar.

Um 56% kvenna yfir 45 ára aldri kusu Clinton og hún fékk aðeins 44% fylgi meðal allra kvenna sem tóku þátt í forkosningunum en 55% þeirra kusu Sanders.

Robby Mook, kosningastjóri Clinton, sagði að úrslitin í New Hampshire hefðu ekki mikla þýðingu fyrir sigurmöguleika hennar. Hann telur það „mjög líklegt“ að Hillary Clinton takist að tryggja sér sigur í forkosningunum í næsta mánuði þegar kosið verður í alls 28 ríkjum, en þau eru með rúman helming kjörmannanna sem velja forsetaefni demókrata formlega á landsfundi í sumar.

Þarf stuðning blökkumanna

Talið er að Clinton leggi áherslu á að treysta stöðu sína í Suður-Karólínu, Texas, Georgíu og Alabama þar sem blökkumenn og fólk ættað úr Rómönsku Ameríku eru í meirihluta meðal kjósenda demókrata. Eiginmaður hennar, Bill Clinton, naut mikils stuðnings meðal blökkumanna þegar hann sigraði í forsetakosningunum 1992 og 1996 og Hillary hefur einnig haft mikið fylgi meðal þeirra, að undanskildum forkosningunum árið 2008 þegar Barack Obama fór með sigur af hólmi.

Kyle Kondik, sérfræðingur í sögu bandarískra kosninga, segir kannanir benda til þess að Sanders eigi á brattann að sækja í suðurríkjunum. „Áður en forkosningarnar hófust var hægt að færa gild rök fyrir því að Iowa og New Hampshire væru tvö af þeim þremur ríkjum þar sem Bernie Sanders stæði best að vígi vegna þess að þar eru kjósendur demókrata mjög frjálslyndir og langflestir þeirra hvítir. Þriðja ríkið er Vermont,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Kondik. Hann skírskotaði til þess að 95% íbúa Vermont, heimaríkis Sanders, eru hvítir og hlutfall þeirra er svipað í New Hampshire og Iowa.

Könnun NBC-sjónvarpsins bendir til þess að Hillary Clinton sé með 37 prósentustiga forskot á Bernie Sanders í Suður-Karólínu og Kondik segir að þingmaðurinn þurfi nú að leggja áherslu á að auka fylgi sitt meðal blökkumanna og kjósenda sem eru ættaðir úr Rómönsku Ameríku. „Það verður mjög erfitt, ef ekki ómögulegt, fyrir demókrata að verða forsetaefni flokksins án mikils stuðnings í þessum hópum.“

„Lýðræðislegur sósíalisti“

Fáir höfðu trú á því að Sanders yrði næsta forsetaefni demókrata þegar hann tilkynnti í apríl í fyrra að hann hygðist bjóða sig fram gegn Hillary Clinton sem var með allt að 40 prósentustiga forskot í könnunum á þeim tíma. Hún hefur gagnrýnt hann fyrir að vera of róttækur og segir stefnu hans vera óraunhæfa. Hann lýsir sér sem „lýðræðislegum sósíalista“, hefur m.a. boðað ókeypis háskólamenntun, heilsugæslu fyrir alla, 15 dollara lágmarkslaun á tímann (1.900 króna), hertar reglur um starfsemi fjármálafyrirtækja og sérstakan skatt á auðmenn. Kannanir benda til þess að hann sé vinsæll meðal fólks sem kýs yfirleitt ekki og ein af stóru spurningunum í kosningabaráttunni er hvort honum takist að fá það til að mæta á kjörstað.

Mikið fylgi Sanders í New Hampshire eftir hnífjafnar forkosningar í Iowa gæti orðið til þess að Hillary Clinton færði sig lengra til vinstri í kosningabaráttunni á næstu vikum en það gæti reynst henni dýrkeypt í forsetakosningunum í nóvember ef repúblikanar tefla fram forsetaefni með raunhæfa möguleika á sigri.

Trump styrkir stöðu sína

Úrslitin í forkosningum repúblikana í New Hampshire eru mikið áfall fyrir andstæðinga Trumps í flokknum. Marco Rubio, öldungadeildarþingmaður frá Flórída, lenti í fimmta sæti eftir góða útkomu í forkosningum í Iowa. Lítið fylgi hans í New Hampshire er einkum rakið til slæmrar frammistöðu hans í sjónvarpskappræðum á laugardaginn var þegar hann svaraði ásökunum um að hann talaði eins og vélmenni í kosningabaráttunni með því að tala eins og vélmenni.

Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður frá Texas, er nú talinn eiga mesta möguleika á að keppa við Trump í suðurríkjunum. Það er ekkert gleðiefni fyrir leiðtoga Repúblikanaflokksins vegna þess að þeir telja Cruz enn verra forsetaefni en Trump vegna mjög íhaldssamra og einstrengingslegra skoðana hans í samfélagsmálum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert