Kate Middleton ritstýrir Huffington Post

Kate Middleton
Kate Middleton AFP

Kate Middleton, hertogaynjan af Cambridge, verður gestaritstjóri Huffington Post í Bretlandi í næstu viku. Hún mun ritstýra netmiðlinum frá „fréttastofu“ sem hefur verið komið upp í íbúð 8 (e. Apartment 8) í Kensington-höll.

Vikunni verður varið í að vekja athygli á geðsjúkdómum barna og ætlar hún að tala út frá eigin reynslu sem móðir.

Katrín tekur við stjórnartaumunum á miðvikudag en samkvæmt því sem fram kemur á vefsíðu Sunday Times hafa nokkur viðtöl og myndskeið þegar verið unnin undir hennar stjórn.

Yfirskrift næstu viku í Bretlandi er „Young Minds Matter“ og er markmiðið að stuðla að vitundarvakningu og eyða fordómum gagnvart geðsjúkdómum hjá börnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert