Mun Viktoría fæða heima?

Viktoría og Daníel.
Viktoría og Daníel. Kungahuset

Fregnir herma að Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar ætli að fæða barn sitt heima í Haga-konungshöllinni í Stokkhólmi. Von er á öðru barni hennar og Daníels Svíaprins í næsta mánuði. Hjónin fluttu í höllina ásamt dóttur þeirra Estelle árið 2010.

Blaðið People hefur þetta eftir sænska blaðinu Svenskdam. 

Viktoría, sem er 38 ára, hefur verið spurð hvort hún beri fleira en eitt barn undir belti og vísa fjölmiðlar þar í ört stækkandi maga hennar. Krónprinsessan hefur aftur á móti svarað því neitandi. Þegar hún gekk með Estelle hélt hún áfram að sinna konunglegum skyldum sínum þar til skömmu fyrir fæðinguna.

Frétt mbl.is: Þungaðar prinsessur vekja athygli

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert