Nýr Svíaprins kominn í heiminn

Estelle litla sem nú er orðin stóra systir í faðmi …
Estelle litla sem nú er orðin stóra systir í faðmi foreldranna sinna. Af Facebooksíðu Kungahuset

Viktoría krónprinsessa Svía og eiginmaður hennar Daniel prins eignuðust son í dag klukkan 20:28 á Karolinska sjúkrahúsinu í Solna.

Drengurinn vóg 3.655 grömm við fæðingu og var 52 cm á lengd. Samkvæmt tilkynningu frá konungshöllinni heilsast bæði móður og barni vel og var faðirinn viðstaddur alla fæðinguna.

Segir í tilkynningunni að eftir fæðinguna hafi hann rætt við um 30 fréttamenn og ljósmyndara á sjúkrahúsinu um gleðina sem fylgir þessum stóra degi. Fyrir á parið dótturina Estelle.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert